Voðva-Liða olía

Voðva-Liða olía

Venjulegt verð 6,500 ISK
Venjulegt verð 6,500 ISK Tilboðsverð 6,500 ISK
Tilboð Uppseld

Voðva-Liða olía er kraftmikil jurtablönduð nuddolía, sérstaklega þróuð fyrir þreytta, stífa og álagða vöðva og liðamót.

Hún hentar vel eftir líkamlegt álag, útivist, íþróttir eða krefjandi vinnu og er tilvalin í nudd þegar líkaminn kallar á aukna umhirðu og slökun.

Vandlega valdar jurtir og jurtainnrennsli vinna saman með nærandi olíum og ilmkjarnaolíum sem gefa frískandi og kælandi áhrif við nudd. Olían hjálpar til við að losa um þreytutilfinningu og stirðleika og veitir notalega slökun á svæðum sem hafa orðið fyrir miklu álagi.

Olían er sérstaklega hentug til nudds þar sem auðvelt er að dreifa henni yfir stærri svæði líkamans. Reglulegt nudd með Voðva-Liða olíu er góð viðbót við líkamsumhirðu eftir áreynslu og hjálpar líkamanum að finna fyrir meiri mýkt, slökun og vellíðan.

Voðva-Liða fæst einnig sem smyrsl – veldu það form sem hentar þér best.

Tvær stærðir

100 ml – hentug til reglulegrar notkunar og nudds heima.
30 ml – lítil og handhæg stærð sem auðvelt er að taka með í gönguferðir, ferðalög eða æfingar.

Notkun

Berið hæfilegt magn á þreytta eða álagða vöðva og liðamót og nuddið vel inn. Notið eftir þörfum, sérstaklega eftir líkamlegt álag.

Innihald / INCI

Cannabis Sativa (cannabidiol) hemp oil, Helianthus Annuuus Seed (sunflower) oil, Arnica Montana (arnica) oil, Achilea millefolium (yarrow)oil, Matricaria Recutita flower (chamomile) oil, Helichrysum italicum (immortalle) oil, Betula lenta (birch)oil, Mentha Piperita (peppermint) , Eucalyptus Radiata (eucalyptus) , Gaultheria Procumbens (wintergreen) , Rosmarinus Officinalis (rosemary) ,Eugenia Caryophyllus (clove) , Zingiber Officinale (ginger) 

 

Skoða allar upplýsingar