RÖSK – Alhliða hreinsisápa fyrir heimilið

RÖSK – Alhliða hreinsisápa fyrir heimilið

Venjulegt verð 2,500 ISK
Venjulegt verð 2,500 ISK Tilboðsverð 2,500 ISK
Tilboð Uppseld

RÖSK er öflug og fjölhæf náttúruleg hreinsisápa, sérstaklega þróuð fyrir þrif á öllu heimilinu.

Hún hentar vel í eldhúsið, fyrir uppþvott, vaska og heimilistæki, sem og í baðherbergið, á sturtugler og ýmsa þvotthelda fleti. RÖSK er einnig mjög góð til að meðhöndla bletti í fatnaði fyrir þvott.

Sápuna má nota beint með blautum klút, svampi eða bursta, eða leysa upp í heitu vatni og nota sem hreinsilausn, til dæmis við gólfþrif og almenn heimilisþrif.

Ferskur sítrónusafi og sítrónugras ilmkjarnaolía gefa sápunni ferskan karakter, en einföld og vandlega mótuð samsetning hennar gerir RÖSK að einstaklega fjölhæfri sápu fyrir heimilið.

Notkun

Bleytið sápuna og nuddið með rökum klút, svampi eða bursta eftir því sem við á. Skolið yfirborð eftir þörfum.

Fyrir bletti í fatnaði: Bleytið blettinn og sápuna, nuddið sápunni beint á blettinn og þvoið síðan eins og venjulega.

Fyrir gólf og almenn þrif: Leysið hæfilegt magn af sápunni upp í heitu vatni og notið sem hreinsilausn.

Aðeins ætluð til heimilisþrifa – ekki ætluð sem  líkamssápa.

Innihald / INCI

Cocos Nucifera Oil (Coconut Oil), Sodium Hydroxide, Aqua (Water), Ricinus Communis Seed Oil (Castor Oil), Citrus Limon Juice (Fresh Lemon Juice), Cymbopogon Citratus Leaf Oil (Lemongrass Essential Oil).

Skoða allar upplýsingar